Reykjavík Art Book Fair

Ásmundarsalur Freyjugata 41, Reykjavík, Iceland

Listabókamessa með áherslu á bókahönnun, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. Verið hjartanlega velkomin á opnun Reykjavík Art Book Fair í Ásmundarsal föstudaginn 12. nóvember kl.18. Reykjavík Art Book Fair byggir á vinsælu alþjóðlegu sýningarsniði listbókamessunnar. Messurnar sem haldnar eru víðsvegar um heim sameina listamenn og hönnuði sem nota bókverkamiðilinn sem listform, lítil listbókaforlög, gallerí og …

Reykjavík Art Book Fair Read More »

Tilraun – Æðarrækt

The Nordic House Sæmundargata 11, Reykjavík, Iceland

Þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna á Íslandi, í Danmörku og Noregi. Sýningin er byggð á rannsókn á fuglinum og umhverfi hans, á sambandi hans við manninn, hefðinni, æðardúni og því hvernig dýrmæt sjálfbær hlunnindi eru nýtt á Norðurslóðum. Æðarfuglinn og æðarbændur hafa þróað einstakt samband sín á milli byggt á vináttu og …

Tilraun – Æðarrækt Read More »

Þau standast ekki tímann

The Living Art Museum Grandagarður 20, Reykjavík, Iceland

Á sýningunni rennur upplausn og væntingar saman við lífsins vökva og sköpunarmátt eyðingar, umbreytingu og hreyfingu. Ferli sem eiga við náttúru sem samfélag, hverful við fyrstu kynni en raunveruleg í augnablikinu. Vökvi lekur í gegnum göt og sprungur, kveikir líf, holar og tekur. Jarðneskar leifar í söltum ílátum verða aftur sjór. Gufa upp eða liðast …

Þau standast ekki tímann Read More »

Löng helgi #3

Midgard Base Camp Dufþaksbraut 14, Hvolsvöllur, Iceland

 Löng helgi #3 opnaði  í Miðgarði á Hvolsvelli föstudaginn 27.janúar kl 17. Sýningunni lýkur sunnudaginn 29.janúar kl 17. Löng helgi #3 er þriðji hlutinn í röð samsýninga sem hófst á Oddsson hostel við Hringbraut í Reykjavík haustið 2021. Annar hluti opnaði á Hótel Hafnarfjalli við Borgarnes í lok janúar 2022. Löng helgi er könnun á …

Löng helgi #3 Read More »