BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:http://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210821
DTEND;VALUE=DATE:20210903
DTSTAMP:20260530T105506
CREATED:20210819T154228Z
LAST-MODIFIED:20220916T110147Z
UID:18526-1629504000-1630627199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Freyja Reynisdóttir & Jónína Helgadóttir: Uppljómandi
DESCRIPTION:Uppljómandi\nSamsýning Freyju Reynisdóttur og Jónínu Björgu Helgadóttur opnar laugardaginn 21. ágúst kl. 15:00 í Gallery Port.\n\nFreyja Reynisdóttir og Jónína Björg Helgadóttir eru báðar myndlistarmenn og hafa í gegnum tíðina unnið oft saman\, aðallega að verkefnum eins og RÓT\, listaverkefni sem þær\, ásamt Karólínu Baldvinsdóttur\, stóðu að í fimm ár á Akureyri. Þær eru einnig báðar stofnmeðlimir Kaktus á Akureyri og hafa sýnt á samsýningum á mörgum stöðum\, m.a. Palais de Tokyo í París.\nAð auki eru þær æskuvinkonur.\n\nSýningin \,\,Uppljómandi” fjallar um samtal. Bæði þetta innra samtal sem fólk á við sjálft sig en líka samskonar náið samtal sem sumir eru svo heppnir að geta átt við örfáa aðra. Fólk sem er þeim nægilega náið til að engin ritskoðun eigi sér stað og skilningur þeirra á milli svo góður að hægt sé að ræða saman næstum eins og maður væri að eiga samtal við annað persónuleika-brot sjálf síns.\n\nJónína Björg Helgadóttir er fædd 1989 og býr og starfar á Akureyri. Eftir útskrift úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2015 hefur hún unnið að eigin myndlist\, stýrt listaverkefninu RÓT og var ein stofnenda listarýmisins Kaktus á Akureyri. Hún hefur haldið sex einkasýningar og sýnt á fjölda samsýninga\, hérlendis sem og erlendis. Hún fæst að miklu leyti við málverk og grafík en fígúratív myndverk hennar hafa oft konuna í forgrunni. Birta og hreinir litir eru áberandi í verkum hennar og ákveðin þreyta í mannskapnum er gegnumgangandi þema.\n\n\,\,Einvera er fylgifiskur listsköpunar minnar. Ég er ein í huga mínum\, ein í undirmeðvitundinni. Stundum eru þar þó aðrir á ferð. Kannski var það öll endurskoðunin sem deildi mér í tvennt og færði mér samveru þessa fólks. Ég er tortryggin en ég kann samt að meta samveruna.”\n\nFreyja Reynisdóttir\, fædd 1989\, býr nú í Reykjavík og stundar meistaranám í frjálsri myndlist við Listaháskóla Íslands. Hún notar verk sín til þess að framkvæma tilraunir í leit að persónulegum sannleikum. Hún telur ferli túlkunar og skynjunar ákjósanlega leið til að eiga í samskiptum um það óyrðanlega en áþreyfanlega í skilningi okkar á sjálfinu og veruleika okkar. Freyja lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014 og hefur starfað sem myndlistarmaður bæði hér- og erlendis frá þeirri útskrift. Auk fjölda sýninga hér á landi hefur hún sýnt verk sín\, bæði á einka- og samsýningum\, í Danmörku\, Bandaríkjunum\, Þýskalandi\, Frakklandi og á Spáni. Þá er hún einn af stofnendum Kaktus listasamsteypunnar á Akureyri.
URL:http://old.icelandicartcenter.is/exhibition/freyja-reynisdottir-jonina-helgadottir-uppljomandi/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:http://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/235895013_1710526622669719_1430813099664627512_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR