BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:http://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230622
DTEND;VALUE=DATE:20230717
DTSTAMP:20260530T085622
CREATED:20230626T164738Z
LAST-MODIFIED:20230626T164738Z
UID:31784-1687392000-1689551999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Irene Hrafnan: Hliðrun
DESCRIPTION:Irene Hrafnan sýnir verk sem unnin voru í samtali við verk og sögulega arfleifð Gunnfríðar Jónsdóttur myndhöggvara og vinnustofu hennar og heimili að Freyjugötu 4. Sýningin stendur yfir í Gryfjunni dagana 22. júní – 16. júlí. \n„Uppskipting þeirra hjóna á húsinu vakti fyrst áhuga minn. Þegar þau Gunnfríður og Ásmundur skildu skiptu þau húsinu í tvennt með því að draga línu eftir því endilöngu. Gunnfríður fékk aftari hluta hússins og Ásmundur fremri rýmin og sýningarsalinn.\nÞegar húsinu var skipt upp urðu til landamæri eða skil sem endurskilgreindi ekki bara samband þeirra hjóna heldur einnig samband fólks við rýmið. Skilin hafa komið fram í veggjum\, hurðum og  jafnvel lúmskari afmörkunum. Skipting á rými breytir rýmisskynjun og krefst aðlögunar og umbreytingar á líkamlegu og andlegu rými. Inngrip sem líkast til leiddi til endurstillingar á húsgögnum\, lýsingu og heildar fagurfræði og þar með hefur haft áhrif á samskipti þeirra við umhverfið. Skiptingin gæti ennig hafa haft í för breytingar á andrúmslofti\, hitastigi og skynörvun. Það er ákveðin tvíhyggja sem felst í hugmyndinni að skipta húsi í tvo hluta\, andstæður sem myndast við þetta byggingarfræðilega inngrip.  Tvískipting sem vísar ekki einungis til aðskilnaðar heldur ennig til sambúðar og samspils tveggja andstæðra þátta…“ \nIrene Hrafnan (f. 1983) lauk BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2007 og Master of Fine Arts frá School of Visual Arts í New York árið 2010. Hún hlaut styrk úr styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur frá Listasafn Íslands árið 2008 og Aaron Siskind Memorial Scholarship frá School of Visual Arts í New York árið 2010. Verk sín vinnur Irene gjarnan út frá rýmislegum vangaveltum arkitektúrs\, efnis og forms en þau vísa á sama tíma til mannlegrar tilvistar og sögulegs tengslasamhengis. Verkin kanna sambandið milli upplifunar á rými og ímyndaðs rýmis\, sem og samband manneskjunnar við umhverfi sitt. Með því að skapa spennu á milli líkamlegrar upplifunar og speglaðrar tilveru endurskapa verkin ný rými og reyna á skynjun áhorfandans á þeim. Verkin vinnur hún í ýmsa miðla\, þar á meðal skúlptúra\, myndverk\, videoverk og texta. Verk hennar hafa verið sýnd á Íslandi\, í Evrópu og í Bandaríkjunum. \nGunnfríður Jónsdóttir (26. desember 1889 – 15. maí 1968) kynntist Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara í Reykjavík og árið 1919 urðu þau samskipa til Kaupmannahafnar\, en það var upphafið að 10 ára dvöl hennar erlendis. Þau Ásmundur voru gefin saman í hjónaband árið 1924 og vann Gunnfríður fyrir þeim um tíma meðan Ásmundur lagði stund á listnám\, í Stokkhólmi og París. Gunnfríður gerði sína fyrstu höggmynd um fertugt en það var styttan “Dreymandi drengur”. Hún gerði einnig brjóstmynd af Sigurjóni Péturssyni í Álafossi en sú mynd stendur í brekkunni ofan við sundlaugina á Álafossi. Meðal verka hennar er minnisvarði við Strandakirkju um kraftaverkið í Engisvík en það er höggmynd úr ljósu graníti sem sýnir hvítklædda konu benda sjómönnum í sjávarháska inn í Engilsvík.
URL:http://old.icelandicartcenter.is/exhibition/irene-hrafnan-hlidrun/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:http://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/DSCF09471.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR