Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Jessica Auer: Landvörður

9 June, 202210 September, 2022

Since 2016 Jessica Auer has been documenting the impact of mass tourism on Icelandic landscape and society.

Working between Canada and her studio in Iceland, Jessica‘s travels between these countries coincided with the tourism boom and as such, she navigated the gap between being a foreigner and a local. She saw both sides of the tourist gaze and sought to share this experience through photography and video.

When travel came to a standstill during the pandemic, Jessica’s work took a significant turn, reflecting on the value systems of this boom and bust industry. Her most recent photographs turn their attention towards landscape conservation, and the efforts to protect areas vulnerable to exploitation during the uncertainty of a global pandemic.

Throughout these last years, Jessica has travelled around the country with a large format view camera, capturing portraits of park rangers, wardens and other people who occupy this environment.

These exchanges created the opportunity to discuss the cultural and natural value of the Icelandic landscape. Through portraiture, landscape photography and video, the exhibition Landvörður presents a meditation on the collective responsibility of Icelanders and visitors to preserve this unique nature, and considers the paradox of attempting to preserve the same landscapes that the tourism industry seeks to exploit.

Jessica Auer is a Canadian photographer, filmmaker and teacher who currently lives in Seyðisfjörður, Iceland. Her work has been presented in museums, galleries and festivals, including The National Museum of Iceland, The Canadian Center for Architecture and the Mulhouse Photography Biennale in France. In 2020, Jessica’s portfolio “Looking North” was awarded the Magnús Ólafsson Grant from the Reykjavík Museum of Photography. The same work was published by Another Place Press in 2021 and featured by ARTE television network and The Guardian. Jessica holds an MFA from Concordia University in Montréal, where she teaches photography part-time. While in Iceland, she runs Ströndin Studio in East Iceland.

The artist would like to thank Kormákur Máni Hafsteinsson and Zuhaitz Akizu for their contributions in the field, as well as Matthew Brooks and Luigi Iagulli for their assistance with post-production. The exhibition Landvörður was supported by the Canada Council for the Arts and the Conseil des arts et des lettres du Québec.

Venue

Reykjavík Museum of Photography
Grófarhús, Tryggvagata 15
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website

Frá árinu 2016 hefur Jessica Auer fengist markvisst við myndræna skrásetningu á áhrifum fjöldaferðamennsku á íslenskt landslag og samfélag.

Jessica ferðaðist milli Kanada og vinnustofu sinnar á Íslandi og fór ekki varhluta af ferðamannauppganginum á þessum tíma og upplifði sig í þeirri stöðu að vera í senn útlendingur og heimamanneskja.  Með því að sjá báðar hliðar með augum ferðamannsins vaknaði hjá henni þörf til að deila þessari reynslu sinni í gegnum ljósmyndir og myndbönd.

Þegar ferðalög lögðust af í Covid faraldrinum urðu töluverðar breytingar á verkum Jessicu sem hófu að endurspegla gildiskerfi þessa uppgangsiðnaðar. Í flestum nýjustu ljósmyndum hennar beinir hún athyglinni að náttúruvernd og þeim tilraunum sem gerðar eru til að vernda svæði sem eru viðkvæm fyrir ágangi í óvissuástandi heimsfaraldurs.

Á undanförnum árum hefur hún ferðast um landið með stórformats myndavél til að taka portrettmyndir af landvörðum og öðrum þeim sem sinna gæslu á þessum svæðum. Þessi samskipti gáfu tækifæri til að spjalla um gildi menningar og náttúru í íslensku landslagi.

Sýningin Landvörður, með sínum portrettmyndum, landslagsljósmyndum og myndböndum, er hugleiðing um þá samábyrgð sem Íslendingar og gestir landsins bera við að vernda þessa einstöku náttúru, og veltir einnig upp spurningum um þá þversögn sem felst í því að reyna að vernda sömu svæði og ferðamannaiðnaðurinn leitast við að nýta.

Jessica Auer er kanadískur ljósmyndari, kvikmyndagerðamaður og kennari sem búsett er á Seyðisfirði. Verk hennar hafa verið sýnd á söfnum, galleríum og hátíðum, m.a. á Listasafni Íslands, The Canadian Center for Architecture og á Ljósmyndatvíæringnum í Mulhouse í Frakklandi. Árið 2020 hlaut hún styrk úr sjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir verkefni sitt „Looking North” sem var gefið út af Another Place Press árið 2021, birt á sjónvarpsstöðinni ARTE og í breska dagblaðinu The Guardian. Jessica er með MFA prófgráðu frá Concordia University í Montréal, þar sem hún kennir ljósmyndun í hlutastarfi. Á Íslandi rekur hún Ströndina Studio á Seyðisfirði.

 

Jessica vill þakka Kormáki Mána Hafsteinssyni og Zuhaitz Akizu fyrir þeirra framlag sem og Matthew Brooks og Luigi Iagulli fyrir aðstoðina við eftirframleiðslu verkanna. Sýningin var styrkt af Canada Council for the Arts og the Conseil des arts et des lettres du Québec.