Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

FERRELYTE: í BRENNIDEPLI

20 May, 202327 May, 2023

FERRELYTE er listamannadúó sem samanstendur af Kamile Pikelyte og Victoriu Björk Ferrell. Samstarfsverkefnið hófst síðla árs 2022 þegar listamennirnir hófu að rannsaka snertifleti verka sinna með hamfarir og vistfræðileg þemu í huga. „Í BRENNIDEPLI“ er fyrsta sýning FERRELYTE á verkum sem unnin eru í samstarfi beggja listamanna.
OPNUNARTÍMAR
Laugardagur 20.5: opnun + gjörningur kl. 14
Sunnudagur 21.5: opið 14-17
Langur Fimmtudagur 26.5: opið 17-21
Laugardagur 27.5: opið 14-17
og eftir samkomulagi
Kamile Pikelyte er listamaður frá Litháen sem útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2022. Þverfagleg listiðkun hennar raungerist í ýmsum miðlum svo sem myndböndum, þrívíddarteikningum, skúlptúr, gjörningum og söfnun net-arkífa. Með listsköpun sinni gagnrýnir Kamile kerfisbundna flokkun ákveðinna hluta sem „óhreinna“ til að fela óþægilegan sannleika, eins og arðrán, fátækt og mengun. Verk hennar leitast við að draga fram í sviðsljósið faldan veruleika sem gjarnan liggur undir yfirborðinu. Sköpunarverk Kamile minna á klippimyndir úr sundurlausum hlutum sem mynda flókið net tákna og kóða. Verk hennar eru innblásin af kærulausri og sívaxandi samsetningu mannlegs óhófs og tillitsleysis við raunveruleikann sem kveikir nýjar hugleiðingar og hugmyndir.
Victoria Björk Ferrell útskrifaðist einnig frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2022. Listiðkun Viktoríu er stöðug rannsókn á ljóðrænu andstæðra krafta og ummerki um spennu og tilfinningar í andrúmsloftinu. Með verkum sínum kannar hún náin tengsl mannsins við tíma og náttúru; fjarveru tíma, hverfulleika og eilífðir, og skoðar árekstra tímakvarða og efnis líkt og þau séu brot af gjörningum sem sitja eftir í umhverfinu. Í samrunanum, þar sem eitt hverfur inn í annað, leitar hún gjarnan að frásögnum um það sem gæti hafa verið og hvað gæti orðið.

Details

Start:
20 May, 2023
End:
27 May, 2023
Event Tags:
,

Venue

Associate Gallery
Köllunarklettsvegi 4
Reykjavík, 104 Iceland
+ Google Map
Phone:
6968473
View Venue Website