
- This event has passed.
Erik DeLuca & Þóranna Dögg Björnsdóttir: Unheard of
21 August, 2021–3 October, 2021

Það er Kling & Bang sérstök ánægja að opna sýninguna Unheard of, laugardaginn 21. ágúst á milli kl.14-18.
Á sýningunni eru ný verk eftir Erik DeLuca í samvinnu við Julius Rothlaender og Melitta Urbancic og Þórönnu Dögg Björnsdóttur í náinni samvinnu við Derrick Belcham. Með þessari sýningu teygir listafólkið sig frá hljóðverkum sínum yfir í samræðuferli við hljóð – og, eða þagnir – með snertingu og í nærveru, fjarveru og tilhugsun líkama sem hreyfast um mismunandi rými. Upphafspunktur sýningarinnar liggur í þessari hreyfingu. Rannsóknir, skáldskapur, hljóðupptökur, skjalagreining, plönturæktun og alltumlykjandi hljóðinnsetning, eru kynnt fyrir áhorfendum.
Báðir listamennirnir unnu í samvinnu við aðra listamenn og einstaklinga við gerð þessa verka. Þeir vilja þakka þessum einstaklingum fyrir örlæti sitt sem og öðrum. Þar á meðal Julius Rothlaender, Katherine Caldwell, Sölvi Björn Sigurðsson, Olivia Gauthier, Árni Heimir Ingólfsson, Aymeric Duriez and Derrick Belcham, LungA School community in Seyðisfjörður, Sibyl Urbancic, Magnús H. Jóhannsson (Landgræðslan), Þjóðskjalasafn Íslands (National Archives of Iceland), and the Jewish Center of Iceland, Þorvarður Árnason, Soffía Auður Birgisdóttir, Ingibjörg Friðriksdóttir, Curver Thoroddsen, Kolbeinn Soffíuson, Federico Placidi, Vernharður Bjarnason, Hjálmur Ragnarsson, Árni Björnsson, Arngrímur Guðmundsson, Amanda Riffo, Guðrún Lárusdóttir, Brynja Emilsdóttir, family and friends.
Erik DeLuca er mynd- og tónlistarmaður sem vinnur með gjörninga, skúlptúr og texta, í samræðu við samfélagslegar venjur og gagnrýni. Verk hans hafa verið sýnd víða, meðal annars í MASS MoCA, Listaskólanum í Chicago, Sweet Pass skúlptúrgarðinum, The Contemporary Austin, Nýlistasafninu í Reykjavík, Columbia-listaskólanum, Skowhegan-listaskólanum, CalArts, Bemis nýlistamiðstöðinni, Fieldwork: Marfa og Yale-listaháskólanum. Skrif hans hafa verið gefin út í Public Art Dialogue (Taylor & Francis), Organised Sound (Cambridge University Press), Leonardo Music Journal (MIT Press) og Mousse. Hann lauk doktorsnámi í tónlist frá Virginiuháskóla (2016), dvaldi í Myanmar með styrk frá Asíska menningarráðinu (2018) og kenndi við Listaháskólann í Reykjavík (2016-18). Nú um stundir er hann gestaprófessor við tónlistar- og margmiðlunardeild Brown-háskólans og heldur fyrirlestra í grunnámi við Rhode Island hönnunarskólann.
Þóranna Dögg Björnsdóttir er hljóð- og myndlistarmaður og tónskáld | flytjandi. Þóranna stundaði tónlistarnám frá unga aldri og lauk burtfararprófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH. Hún lauk BA gráðu í hljóð- og myndlist frá Konunglega Listaháskólanum í Haag árið 2006 og M.Art.Ed gráðu í kennslufræði lista við Listaháskóla Íslands árið 2014. Þóranna hefur sótt ýmis námskeið og vinnustofur í tengslum við tónlist, hljóð- og myndlist og staðið að kennslu í þeim efnum. Viðfangsefni Þórönnu eru mörg og fjölbreytt en snúast gjarnan um heimssýn einstaklingsins, hvernig hún mótast og þróast. Verkefnin fela í sér þverfagleg vinnubrögð og þreifingar þvert á miðla og eru verk hennar gjarnan sambland af mynd og hljóði; taka form í gegnum lifandi gjörninga, innsetningar, skúlptúra og hljóðverk. Verk Þórönnu hafa verið flutt víða og hefur hún komið fram á fjölmörgum tónleikum og listahátíðum á Íslandi og erlendis. Þóranna starfar einnig með listahópnum Wunderland.
Derrick Belcham er kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem býr í Brooklyn, New York og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir gerð heimildarmynda og tónlistarmyndbanda. Hann hefur unnið með listafólki á borð við Philip Glass, Steve Reich, Laurie Anderson, Paul Simon og hundruðum annarra við tónlist, dans, leikhús og byggingarlist. Hann hefur unnið verk og haldið fyrirlestra við stofnanir á borð við MoMA PS1, MoCA, Solomon R. Guggenheim-safnið, Whitney-listasafnið, Musee D‘Art Contemporain, Philip Johnson glerhúsið, Tónlistarakademíuna í Brooklyn og Nýlistamiðstöðina í Cincinnati. Verk hans birtast reglulega í The New York Times, Vogue, Pitchfork, NPR og Rolling Stone, auk þess sem þau eru sýnd á stuttmynda-, dans- og gjörningalistahátíðum og yfirlitssýningum um allan heim.
Sýningarstjórar:
Ana Victoria Bruno
Becky Forsythe

Kling & Bang is delighted to open the exhibition Unheard of on Saturday August 21st between 2-6pm.
The exhibition presents new work by Erik DeLuca with Julius Rothlaender and Melitta Urbancic, and Þóranna Dögg Björnsdóttir with Derrick Belcham. With the exhibition the artists extend from their sonic-based practices and into process-based conversations with the sound — and, or silences — by performing, through touch, and in the presence, absence or thought of bodies moving through different locations. Unheard of takes these actions as its starting point. Exploratory research, poetry, field recordings, archival analysis, plant cultivation and immersive sound installation, are newly presented to viewers.
Both artists worked in collaboration with other artists and individuals to create these works. They would like to thank those individuals for their generosity and others, including, Julius Rothlaender, Katherine Caldwell, Sölvi Björn Sigurðsson, Olivia Gauthier, Árni Heimir Ingólfsson, Aymeric Duriez and Derrick Belcham, LungA School community in Seyðisfjörður, Sibyl Urbancic, Magnús H. Jóhannsson (Landgræðslan), Þjóðskjalasafn Íslands (National Archives of Iceland), and the Jewish Center of Iceland, Þorvarður Árnason, Soffía Auður Birgisdóttir, Ingibjörg Friðriksdóttir, Curver Thoroddsen, Kolbeinn Soffíuson, Federico Placidi, Vernharður Bjarnason, Hjálmur Ragnarsson, Árni Björnsson, Arngrímur Guðmundsson, Amanda Riffo, Guðrún Lárusdóttir, Brynja Emilsdóttir, family and friends.
Erik DeLuca is an artist and musician working with performance, sculpture, and text, in dialogue with social practice and critique. He has presented at a variety of places including MASS MoCA, School of the Art Institute of Chicago, Sweet Pass Sculpture Park, The Contemporary Austin, The Living Art Museum, Columbia School of the Arts, Skowhegan School for Painting and Sculpture, CalArts, Bemis Center for Contemporary Arts, Fieldwork: Marfa, and Yale University School of Art. His writing projects are published in Public Art Dialogue (Taylor & Francis), Organised Sound (Cambridge University Press), Leonardo Music Journal (MIT Press), and Mousse. He received a PhD in Music from the University of Virginia (2016), was in Myanmar with the support of an Asian Cultural Council grant (2018), and lectured at the Iceland University of the Arts (2016-2018). He is currently Visiting Assistant Professor of Music and Multimedia at Brown University and Lecturer in Experimental and Foundation Studies at Rhode Island School of Design.
Þóranna Dögg Björnsdóttir is an audio|visual artist & composer|performer. Þóranna studied music from an early age and graduated as a classical pianist. Then she immediately turned to the field of contemporary music and art. A graduate of the Royal Academy of art in the Hague Þóranna has worked as a video and performance artist in the electroacoustic field. Her subject matters are varied, often revolving around human nature and a person’s worldview, how it shapes and progresses. Interweaving image and sound; her work is often built upon the interplay of film and live music performances and takes on the form of sculpture, performance and sound work. Þóranna has exhibited her work widely and performed at numerous concerts and art festivals in Iceland and internationally. She also works as a performance artist with the international art group Wunderland.
Derrick Belcham is a Canadian filmmaker based out of Brooklyn, NY whose internationally-recognized work in documentary and music video has led him to work with such artists as Philip Glass, Steve Reich, Laurie Anderson, Paul Simon and hundreds of others in music, dance, theater and architecture. He has created works and lectured at such institutions as MoMA PS1, MoCA, The Solomon R. Guggenheim Museum, The Whitney Museum Of American Art, Musee D’Art Contemporain, The Philip Johnson Glass House, Brooklyn Academy of Music and The Contemporary Arts Center of Cincinnati. His work regularly appears in publications such as The New York Times, Vogue, Pitchfork, NPR and Rolling Stone as well as being screened at short, dance and experimental festivals and retrospectives around the world.
Curators
Ana Victoria Bruno
Becky Forsythe