
- This event has passed.
Elfa Björk Jónsdóttir: Gulur, dökkgrænn, fjólublár…
15 October, 2022–30 October, 2022

Details
- Start:
- 15 October, 2022
- End:
- 30 October, 2022
- Event Tags:
- Art Without Borders, Elfa Björk Jónsdóttir, List án landamæra
- Website:
- https://www.listin.is/
Venue
- Hafnarborg Center of Culture and Fine Art
-
Strandgata 34
Hafnarfjörður, 220 Iceland + Google Map - View Venue Website

Á sýningunni má sjá ný og nýleg verk eftir Elfu Björk Jónsdóttur, jafnt málverk, teikningar og keramik. Myndheimur listakonunnar byggir á samspili hins formræna og hins fígúratífa, þar sem hún notar hreina og tæra liti og tekur áhorfandann með sér í ferðalag um framandi heima. Þá sækir hún innblástur í náttúruna við gerð verka sinna og þar koma gjarnan fyrir ýmiss konar verur og mótíf sem sum hver finnast ekki í íslenskri náttúru.
Fyrirmyndir sækir Elfa Björk ýmist úr náttúrulífsbókum eða listasögunni og færir hún gjarnan myndefnið yfir í sinn einstaka myndheim. Í sumum verkanna má jafnvel segja að við fljúgum beint inn í iður myndanna, líkt og horft sé frá sjónarhorni arnarins. Svífum við þannig inn í litahaf þar sem mynstur og ólíkar litasamsetningar umlykja okkur og gleðja augað.
Elfa Björk Jónsdóttir býr og starfar á Sólheimum í Grímsnesi og vinnur þar daglega að listsköpun sinni. Hún hefur sótt námskeið í myndlist frá unga aldri, meðal annars í málaralist, teikningu og glerlist. Á Sólheimum hefur hún aðallega notið leiðsagnar Ólafs Más Guðmundssonar, myndlistarkennara og fagstjóra listasmiðju Sólheima. Verk Elfu Bjarkar hafa meðal annars verið sýnd í Ásmundarsal, Gallerí Gróttu, Listasafni Árnesinga og í Tékklandi.
Details
- Start:
- 15 October, 2022
- End:
- 30 October, 2022
- Event Tags:
- Elfa Björk Jónsdóttir, Hafnarborg, List án landamæra
- Website:
- https://hafnarborg.is/
Venue
- Hafnarborg Center of Culture and Fine Art
-
Strandgata 34
Hafnarfjörður, 220 Iceland + Google Map - View Venue Website