Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Einar Garibaldi Eiríksson: Reykjavík / Vegvísir

18 March, 202311 June, 2023

Á sýningunni gefur að líta innsetningu og bókverk er sækir efnivið sinn til aldagamalla hugleiðinga um sjónræna framsetningu verunnar eins og hún birtist okkur í listasögunni, ekki síst í verkum er tengjast hefð útsýnismynda og landslagsins. 

Verk Einars byggir á kortlagningu ferðamannaiðnaðarins á Reykjavík samtímans, þar sem síkvik neysla og myndafjöld á álitsgjafaöld hefur smám saman mótað ákveðna „vegvísa” og valið „áhugaverða staði” fyrir gestkomandi í höfuðborginni. 

Á sýningunni og í bókverkinu sem fylgir veltir Einar fyrir sér þessu undarlega samhengi kortlagningar og hversdagslegrar upplifunar okkar á veröldinni. Hann kannar áhrif slíkra mynda á upplifun okkar af borginni um leið og hann bendir okkur á nauðsyn þess  hvert og eitt okkar finni sín eigin kennileiti. 

Einar Garibaldi er myndlistarmaður og sýningarstjóri sem á að baki fjölda sýninga á verkum sínum bæði heima og erlendis. List hans á oftar en ekki í beinu samtali við listasöguna, sér í lagi birtingarmyndir náttúru og borgar, þar sem tekist er á við að skilja upplifanir okkar af nánasta umhverfi, jafnt sem mótun þeirra í gegnumtungumálið, hverskonar myndgerð, kortlagningu og skiltagerð.

Reykjavík / Vegvísir – A Guide er þriðja sýning sem haldin er í Glerhúsið sem fagnar árs afmæli snemma í sumar.  

Sýningu Einar Garibalda lýkur 11. júní næstkomandi.

Details

Start:
18 March, 2023
End:
11 June, 2023
Event Tags:
Website:
https://www.instagram.com/glerhusid_reykjavik/

Venue

Glerhúsið
Vesturgata 33b
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone:
8933126