Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld

10 June, 202331 December, 2023

Á sýningunni Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld  gefur að líta úrval af þeim verkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast síðustu tvo áratugi. Verkin gefa innsýn inn í þá breidd og þær áherslur sem hafa verið að mótast og gerjast í íslensku listalífi frá aldamótum 2000 til dagsins í dag.

Á sýningunni er að finna 24 listaverk úr safneigninni, eitt verk fyrir hvert ár frá 2000 til dagsins í dag. Sjá má verk eftir marga af fremstu samtímalistamönnum þjóðarinnar, viðamiklar innsetningar og umfangsminni verk. Verkin eru sumhver vel þekkt og vinsæl en nokkur
hafa sjaldan verið sýnd og gætu komið safngestum á óvart.  
Valinn verður einn listamaður fyrir hvert ár 21. aldarinnar og tekur sýningin  breytingum strax í haust  þegar  kviksjánni verður snúið og nokkur verk víkja fyrir öðrum, allt til þess gert  að sýningin verði fjölbreyttari og gaman verði að sækja safnið heim aftur og aftur.

Í ár fagnar Listasafn Reykjavíkur því að 50 ár eru liðin frá því að fyrsta aðsetur safnsins var formlega opnað á Kjarvalsstöðum. Í tilefni tímamótanna er áhersla lögð á safneignina og tækfærið nýtt til til þess að skoða og sýna gersemar sem þar eru varðveittar. Sýningin er sú þriðja í sýningarröðinni Kviksjá sem er liður í þeirri áherslu en á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýningin Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld  og fyrr á árinu var í Hafnarhúsinu sýningin Kviksjá erlendrar myndlistar.

Details

Start:
10 June, 2023
End:
31 December, 2023
Event Tags:
Website:
https://listasafnreykjavikur.is/syningar/kviksja-islensk-myndlist-21-old

Venue

Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið
Tryggvagata 17
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website