
- This event has passed.
VOR/WIOSNA listahátíð
20 April, 2023–5 May, 2023

Í apríl fögnum við vorkomunni í fjórða sinn með listahátíðinni VOR/WIOSNA. Í ár verður þema hátíðarinnar hönnun og mismunandi svið hennar, allt frá keramik og tísku til vöru- og matarhönnunar. Þátttakendur hátíðarinnar eru íslenskir listamenn með pólskan bakgrunn, hönnuðir af pólskum uppruna sem búa og starfa í Noregi ásamt listafólki sem býr og starfar í Póllandi. Verkin á sýningunni sýna mismunandi túlkun og skynjun á hvað hönnun er; það getur verið performatívur kvöldverður, listræn rannsókn á hreinsunarathöfnum eða stórfenglegur vasi þar sem efnið, form þess og vinnan við sköpunina er kjarninn í verkinu.
Sterk tenging við umhverfið er “axis mundi” sýningarinnar. Vatn og jarðvegur, jurtir og tré, rannsóknir á efninu og skoðun uppruna hönnunarinnar sjálfrar endurómar í hverju verkefni og verkefnin sem við kynnum spegla jafnframt hvert annað og skapa harmoniska sýningu.
Tónlist kemur einnig mikið við sögu þetta árið sem fyrr; pólska hljómsveitin Polski Piach verður með tónleika auk þess sem gestalistamaður okkar Krzysztof “Arszyn” Topolski mun flytja og sýna hljóðverk. Báðir viðburðirnir eru hluti af ACT_IN_OUT tveggja ára listaverkefni tileinkað tónlist og leikhúsi sem Sláturhúsið er hluti af ásamt Fabryka Sztuki Łódź, Carte Blanche Theater og Visjoner Teater frá Noregi. Krzysztof verður einnig í samstarfi við djassgítaristann, og listrænan stjórnanda Far out / Langt út jazzseríunnar í Sláturhúsinu, Edgars Rugajs og munu þeir koma fram saman á tónleikum þann 26. apríl.
Að venju mun Vor einnig bjóða uppá vinnustofur fyrir börn og foreldra, þar verður endurvinnsla er í forgrunni. Unnið verður með hráefni úr umhverfinu og nytjahlutir skapaðir úr því. Síðast en ekki síst verður sýning á stuttum hreyfimyndum sem Ex Anima Foundation í Varsjá hefur umsjón með.