Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kristinn E. Hrafnsson: allt er nálægt

15 April, 202320 May, 2023

Í sýningartexta Sigmundar Ernis Rúnarssonar, sem hann nefnir Tími og fjarlægð, segir: „Tíminn líður. Það er vissa okkar. Og líklega sannfæring. Kannski má það ekki minna vera. Frá skríkjandi æskunni kemur hann og fer. Heldur fálmandi. Og sjálfsagt er þar eitthvert öryggi komið. Því tímanum getur ekki verið öðruvísi varið. Hann kemur og fer, hiklaus, eindreginn. Eins og þráðbein lína. Skýr. Og það er hann í eðli sínu. Frá einum tíma til annars. Úr austri til vesturs. Og okkur mannkyninu er einhvern veginn komið fyrir innan þessara tímafreku átta. […]”

„Tíminn er listamanninum Kristni E. Hrafnssyni hugstæður. En það er ekki nýtilkomið. Og sömuleiðis nálægðin, svo áþreifanleg sem hún er á snúningi jarðar um öxul sinn, frá vestri til austurs. Og þar vegur það smáa og stóra salt, ásamt því beina og ávala. En þarna er listin komin, Kristins sjálfs, en líka bara afstaða hans og viðhorf, því einhvern veginn vaknar maður – og á aðra vegu sofnar maður. Það er ramminn. Allt gerist þar, utan og innan, í misjafnlega skrifuðum strikum og sveigum.”

Kristinn E. Hrafnsson (1960) stundaði myndlistarnám á Íslandi og í Þýskalandi á árunum 1982-1990. Hann hefur að mestu unnið sem myndhöggvari, þó hann hafi alla tíð einnig unnið í aðra miðla, s.s. ljósmyndir og grafík og textaverk hans eru mörgum kunn. Kristinn hefur haldið tugi einkasýninga, tekið þátt í miklum fjölda samsýninga og hann á verk í flestum opinberum söfnum á landinu. Þá á hann einnig listaverk víða um land á opinberum vettvangi.

Details

Start:
15 April, 2023
End:
20 May, 2023
Event Tags:
Website:
https://hverfisgalleri.is/

Venue

Hverfisgallerí
Hverfisgata 4
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website