
- This event has passed.
Patty Spyrakos: Svart tungl dvínar
28 October, 2022–20 November, 2022

Óttinn við nornina var árhundruðir í mótun. Nornin er ein af sárafáum ímyndum okkar um sjálfstæðar konur með völd; galdrar voru í miklum metum í Egyptalandi til forna, og ekki litið á þá sem aðskilda trúarbrögðum, en síðar voru þeir fordæmdir í flestum siðmenningum sem hverfðust um skipulögð trúarbrögð.
Með fjölkynngi öðlast man vald yfir örlögum sínum, og á í samtali við handanheima, í skipulögðum trúarbrögðum er man komin upp á vilja guðs/-anna. Áróður um ímynd nornarinnar skóp ótta við hana og olli því að hún var jafnvel skrifuð út úr mannkynssögunni; nornaveiðar ágerðust með vexti kapítalismans, og jafnframt með greftri eftir auðlindum jarðar.
Nornin stendur fyrir virðingu fyrir náttúrunni, ást á lífinu og frjálsan vilja.
Nornin stendur fyrir virðingu fyrir náttúrunni, ást á lífinu og frjálsan vilja.
„Nornaveiðar í öllum sínum breytilegu myndum eru einnig öflug aðferð til þess að rústa félagslegum tengslum og læða þeirri hugmynd inn hjá fólki að undir niðri leyni nágranninn, vinurinn eða elskhuginn annarri hlið á sér og þrái völd, kynlíf, auð, eða vilji einfaldlega láta illt af sér leiða.” – Sylvia Federici
„Sýningin dregur einnig fram fegurð og mikilfengleika sandsins. Í hverju korni hans er að finna sögu staðar. Þar má finna veraldarsöguna. „Sandur er fagurt efni, dularfullt og óendanlega breytilegt. Hvert einasta sandkorn í flæðarmálinu er niðurstaða ferla sem eiga rót að rekja til óræðs upphafs lífsins eða jafnvel sjálfrar jarðarinnar.” – Rachel Carson. In myth, sand is the creator of dreams.
„Það býr líf að baki þess persónuleika sem notar persónuleika sem grímur. Það getur gerst að lífið taki niður grímuna og að djúpið svari af dýpt.” – Dion Fortune, The Goat-Foot God
——
Patty Spyrakos er myndhöggvari og listmálari sem leggur áherslu á blandaða tækni og er búsett í Reykjavík. Patty lauk BS-prófi í sálfræði og mannfræði við Loyola-háskóla í Chicago en í námi sínu lagði hún einkum áherslu á skynkerfi, skyntúlkun og þróunarsálfræði. Um 20 ára skeið starfaði hún við sjónræna og gagnvirka hönnun og sem hugmyndastjóri hjá stóru alþjóðlegu tæknifyrirtæki í San Francisco. Hún lærði keramikgerð í þrjú ár við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Patty leggur í verkum sínum mikla áherslu á tilraunastarfsemi með efniviðinn og viðfangsefnið er oftar en ekki undir áhrifum frá þeim stað þar sem hún heldur til eða þar sem sýningin er haldin. Hver sýning listakonunnar vekur upp ný sjónarhorn á bæði verkum og hana sjálfa en undir niðri má skynja þróunarferli hugans, andleg og tilfinningaleg átök, hverfult jafnvægi, hið yfirnáttúrulega og þróun tengsla og tenginga af öllu tagi jafnt innan sem á milli sjálfsins og samfélagsins. Hún hefur sýnt í Chicago, Los Angeles, Hong Kong, Reykjavík, og New York.