Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sigurður Guðjónsson: Transits

20 October, 202215 January, 2023

Sigurður Guðjónsson presents Transits, an exhibition that unveils the expressive and evocative dimension of the artist’s work. Transits explores the movements, fluxes and discrete drifts occurring in the material world. The selection making up the exhibition comprises both recent work and one new production. As a unified composition, all the works are rooted in the artist’s exploration of micro-landscapes and video imaging where the visible, the audible and the spatial form an unbroken whole. Guðjónsson is devoted to capturing the rhythms and signals contained in a surface or object, particularly when related to industrial devices or materials. The almost imperceptible transitions within the works are careful formed to reveal the rhythms, and the pulses. Transits invites us to think about the production of images, the complex insights into material, and the state of perpetual transformation of the world.

Sigurður Guðjónsson (b. 1975) was selected to represent Iceland at the 59th International Art Exhibition – La Biennale di Venezia in 2022. In Venice, he exhibited his work Perpetual Motion which is currently on display in BERG Contemporary in Reykjavík. The Icelandic Pavilion at the Biennial and the exhibition Transits in Reykjavík Art Museum – Hafnarhús were curated by Mónica Bello.

Venue

Reykjavik Art Museum – Hafnarhús
Tryggvagata 17, 101
Reykjavík, Iceland
+ Google Map

Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós.

Hér á sýningunni gefst færi á að kynnast ögrandi og svipmikilli vídd listsköpunar Sigurðar Guðjónssonar. Leiðni býður áhorfendum að grandskoða hreyfingar, flæði og hófstilltar umbreytingar sem eiga sér stað í efnisheiminum. Úrvalið sem hér er samankomið samanstendur af sex nýlegum verkum, sem og einu glænýju. Öll eiga þau rætur að rekja til könnunar listamannsins á örlandslagi og vídeómyndmáli þar sem hið sýnilega, heyranlega og rýmislega mynda órofa heild. Sigurður leggur áherslu á að fanga tíðnisvið og tákn sem greina má í yfirborði eða afmörkuðum hlut, sérstaklega í tækjum og efnum tengt iðnaði. Hann leggur sig í líma við að fanga nánast ógreinanlegan takt og slátt sem kemst til skila í því hægfara ummyndunarferli sem greina má í verkunum. Sýningin Leiðni hvetur okkur til að hugsa um tilurð mynda, veitir innsýn í margræðni efnis, og minnir á ævarandi umbreytingu heimsins.

Sigurður Guðjónsson (f.1975) er einn fremsti vídeólistamaður íslenskrar samtímalistar og  var  fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022. Í rökstuðningi fagráðs sem útnefndi Sigurð sem fulltrúa Íslendinga á Feneyjatvíæringinn segir: „með vali Sigurðar teflir Ísland fram listamanni sem unnið hefur að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem vakið hafa verðskuldaða athygli í heimi samtímalistarinnar.“ Sigurður stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998-1999, Listaháskóla Íslands 2000 -2003 BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004. Hann var valinn Myndlistarmaður ársins 2018. Verk Sigurðar í Feneyjum Perpetual Motion  verður sýnt í BERG Contemporary í Reykjavík frá 22. október.

Mónica Bello sýningarstýrir Leiðni í Hafnarhúsi en hún er jafnframt sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjartvíæringnum.

Venue

Reykjavik Art Museum – Hafnarhús
Tryggvagata 17, 101
Reykjavík, Iceland
+ Google Map