Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sigurður Atli Sigurðsson: Haugar

15 October, 202218 October, 2022

Details

Start:
15 October, 2022
End:
18 October, 2022
Event Tags:
,
Website:
https://www.facebook.com/events/486049740248839/?ref=newsfeed

Venue

Gallery Port
Laugavegur 32
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website
“Árið 2014 dvaldi ég á námusvæði Zollverein í þýska bænum Essen. Þar var stundaður námugröftur í yfir hundrað ár þar til allri starfsemi var hætt á níunda áratugnum. Síðan þá hefur svæðið verið sett á heimsminjaskrá. Á þessum slóðum eru aflíðandi hólar og hæðir, manngert landslag. Á einni hæðinni stendur skúlptúr eftir Richard Serra, gríðarstór stálplata sem trónir á toppi fimmtíu metra hárrar hrúgu af úrgangi úr námugreftri. Skúlptúrinn tekur á sig trúarlega mynd eins og legsteinn á toppi greftrunarhaugs stóriðjunnar. Þegar ég stóð á malarplaninu sem umkringir verkið gat ég ekki hugsað um annað en negatífa rýmið undir jörðinni, sem haugurinn holaði út.
Lögun manneskjunnar er teygð í form landslags sem minnir á fjöll, haug eða hrúgu. Einhver atburður skapaði þetta form, truflun á jafnsléttunni, hvort sem það kom til af náttúrunnar hendi eða mannavöldum. Haugarnir bera vitneskju um atburðinn, eru minnisvarðar þess sem gerst hefur.”
Sigurður Atli lauk námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2011. Hann hlaut styrk frá Franska sendiráðinu á Íslandi til meistaranáms í myndlist við École Superieure d’Art et de Design Marseille-Méditerranée þar sem hann lauk MFA prófi árið 2013. Sigurður Atli rekur Y gallery og Prent & vini auk Reykjavík Art Book Fair. Hann starfar sem forstöðumaður verkstæða við Listaháskóla Íslands. Nýlega hefur hann tekið þátt í sýningunum “Nokkur nýleg verk” á Listasafni Íslands, “Stigveldi” í Ásmundarsal, “Head to Head” í A-Dash í Aþenu, “Formation” í i8 og “Other Hats” í International Print Center New York.

Details

Start:
15 October, 2022
End:
18 October, 2022
Event Tags:
,
Website:
https://www.facebook.com/events/486049740248839/?ref=newsfeed

Venue

Gallery Port
Laugavegur 32
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website