Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Bathing Culture

1 February, 202225 September, 2022

The outdoor, geothermal pool is the most interesting public sphere in Iceland. A place where strangers cross paths and acquaintances meet; it serves a purpose similar to the plaza in warmer climes, the pub in England or the café in France.
It is a source of wellbeing and part of everyday life.

The exhibition traces the development of public pools in Iceland from the late 19th century when the focus was on learning, hygiene and physical education, illustrates how play later became a key element, and finally to the present when pleasure is the ultimate goal of a spa-like experience.

Architects, graphic designers, product designers, fashion designers and experience designers have taken part in shaping this story in consort with the public, the pools staff, and the munincipalities. It is an example of social design at its best.

Details

Start:
1 February, 2022
End:
25 September, 2022
Event Tags:
Website:
https://www.honnunarsafn.is/en/exhibition/bathing-culture

Venue

Museum of Design & Applied Art
Garðatorg 1
Garðabær, 210 Iceland
+ Google Map
View Venue Website

Það eru engir viðskiptavinir í sundlaugum landsins, aðeins sundlaugagestir: almenningur á hverjum stað fyrir sig, fólk á öllum aldri með alls konar bakgrunn, alls konar holningu og alls konar sýn á lífið. Mikilvægustu almannagæðin á Íslandi eru fólgin í heita vatninu. Athyglisverðustu almannarýmin eru sundlaugarnar. Laugarnar eru vettvangur þar sem ókunnugir hittast og verða jafnvel málkunnugir, staðir þar sem samfélagið birtist sjálfu sér—á sundfötum.

Sundlaugamenningin snýst um lífsgæði og lýðheilsu, íþróttir, leik, afslöppun og skemmtun, líkamsmenningu, siðmenntun og samneyti. Í sundsamfélaginu svamla fjölbreyttir líkamar og í sturtuklefum almenningslaugarinnar er hversdagsleikinn allsber, óuppstilltur og ófilteraður. Daglegt líf hefur í gegnum tíðina sett mark sitt á sundlaugarnar og gert þær að líkamsræktarstöð, skólastofu, félagsheimili, leikvelli og heilsulind.

Mörg svið hönnunar koma við sögu í sundlaugamenningunni. Arkitektúr gegnir lykilhlutverki og þróun lauganna endurspeglar lifandi samtal arkitekta og samfélags. Grafísk
hönnun, vöruhönnun, fatahönnun og upplifunarhönnun koma saman í sundinu. Sundlaugarnar eru samfélagshönnun: þær hafa mótað samfélag, menningu og líkama fólksins í landinu í meira en öld.  Samfélagshönnun snýst um að skapa vellíðan og bæta daglegt líf fólks, ekki að skapa söluvöru.

Sýningin nær yfir tímabilið frá sundvakningunni við upphaf 20. aldar til dagsins í dag. Sagan sem hún segir af sundlaugamenningu er um leið ylvolg sagan af íslensku nútímasamfélagi með léttri angan af klór og hveralykt, gufuslæðu og skvampi.

Sýningin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands. Hún byggir á rannsóknarsamstarfi þeirra Arnar D. Jónssonar, Ólafs Rastrick og Valdimars Tr. Hafstein sem og rannsóknum þjóðfræðinganna Katrínar D. Guðmundsdóttur, Katrínar Snorradóttur, Ólafs Ingibergssonar og Sigurlaugar Dagsdóttur.

Sýningarstjórar: Valdimar T. Hafstein, þjóðfræðingur og Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður.

Grafísk hönnun: Ármann Agnarsson og Helgi Páll.

Details

Start:
1 February, 2022
End:
25 September, 2022
Event Tags:
,
Website:
https://www.honnunarsafn.is/is/syning/sund

Venue

Museum of Design & Applied Art
Garðatorg 1
Garðabær, 210 Iceland
+ Google Map
View Venue Website