Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Erling T. V. Klingenberg: punktur, punktur, punktur

4 December, 20216 February, 2022

Erling T. V. Klingenberg birtist oft sjálfur í listsögulegum tilvísunum í eigin verkum. Tilvísunum sem notaðar eru til að ná fram hlutlægri framsetningu og huglægum ímyndum. Vinnuaðferðir hans sveiflast á milli þess óþægilega og þess einlæga. Ágengar tilfinningar eru einnig algengt viðfangsefni verka hans.

Erling setur hugmyndina um listamanninn í óvænt og oft skoplegt samhengi, eins og endurspeglast í slagorðinu: „Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu“ (“It´s hard to be an Artist in a Rock star’s body”). Þráhyggjukenndar tilraunir Erlings til að skilgreina hlutverk listamannsins í samfélagi „rokkstjörnunnar“ knýja hann til rannsókna á hvernig listamaðurinn gerir, en ekki hvað hann gerir. Það er því ferlið sem vekur áhuga hans, en ekki útkoman.

Erling T. V. Klingenberg stundaði nám í myndlist á Íslandi, í Þýskalandi og Kanada. Hann hefur sýnt víða hérlendis og erlendis og er einn af stofnendum Kling & Bang í Reykjavík.

Details

Start:
4 December, 2021
End:
6 February, 2022
Event Tags:
,
Website:
http://www.listak.is/is/syningar/naestu-syningar/erling-t-v-klingenberg

Venue

Listasafnið á Akureyri
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map
View Venue Website

Erling T. V. Klingenberg often appears himself in his own works, in arthistoric references. These references serve the purpose of producing an objective presentation and subjective images. His work methods swing between the uncomfortable and the honest. Aggressive emotions are also a recurring subject in his work.

Klingenberg often presents the idea of the artist in a humorous context, as is reflected in the slogan “It´s hard to be an Artist in a Rock star’s body.“ His obsessive attempts to define the role of the artist in society „the rockstar“ drive him to research how the artist does, not what he does. Hence it is the process that sparks his interest, not the outcome.

Erling T. V. Klingenberg studied art in Iceland, Germany and Canada. He has exhibited his work widely in Iceland as well as abroad and is one of the founding members of Kling & Bang in Reykjavík.