Íslensku myndlistarverðlaunin afhent í dag

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, afhenti Íslensku myndlistarverðlaunin við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag.

Þetta er í fjórða skipti sem Myndlistarráð stendur að úthlutun Íslensku myndlistarverðlaunanna en markmiðið er að heiðra íslenska myndlistarmenn, eða myndlistamenn sem búsettir eru á Íslandi, og vekja athygli á því sem vel er gert jafnframt því að hvetja til nýrrar listsköpunar.

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, ávarpar gesti. Ljósmynd: Owen Fiene.

Veitt voru fern verðlaun. Myndlistarmaður ársins eru verðlaun sem veitt eru myndlistarmanni sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu myndlistarári. Hvatningarverðlaun eru veitt starfandi myndlistarmanni sem nýlega hefur komið fram á sjónarsviðið og vakið athygli með verkum sínum. Í ár veitti Myndlistarráð einnig í fyrsta skipti Heiðursviðurkenningu ásamt viðurkenningu fyrir útgefið efni sem talið er hafa mikilvægt gildi fyrir kynningu og rannsóknir á íslenskri myndlist.

.

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá. Ljósmynd: Owen Fiene.

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá hlaut Heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Í umsögn Myndlistarráðs kemur fram:

Með íhugulum verkum sínum hefur hún vakið okkur til umhugsunar um siðferðileg álitamál í fortíð og nútíð og beint sjónum okkar að tímanum og hverfulleikanum, viðkvæmri náttúru landsins og tjáningarríku tungumálinu. Auk þess hefur Kristín fært menningarsögulega mikilvægan efnivið, ullina, inn í samtímalistina og sýnt fram á hvílíkan fjársjóð við eigum í íslensku ullinni.“

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Land-Brot, 1960, sáldþrykk á hör, 44 x 70 cm. Birt með leyfi listamannsins og i8 Gallery.

„Kristín Jónsdóttir er fædd á Munkaþverá í Eyjafirði árið 1933. Hún stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík 1949 til 1952 og frá 1954 til 1957 var hún nemandi í við textíldeild Kunsthåndværkerskolen í Kaupmannahöfn. Árið 1959 var hún við nám í París í École des Arts Italiennes og Atélier Freundlich og veturinn 1963 til 1964 var hún við nám á Ítalíu við Universitat per Stranieri í Perugia. Kristín kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands fram til 1975 þegar hún ákvað að helga sig myndlistinni og hefur síðan þá haldið yfir 20 einkasýningar á Íslandi, í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Verk eftir hana eru í helstu listasöfnum landsins og einnig í söfnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar meðal annars silfurverðlaun Alþjólega textílþríæringsins í Lódz í Póllandi árið 1992. Kristín hefur verið virkur félagi í Textílfélaginu og var brautryðjandi hér á landi við gerð verka úr þæfðri ull.“

.

Tvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson. Ljósmynd: Owen Fiene.

Libia Castro og Ólafur Ólafsson hlutu Myndlistarverðlaun ársins 2021fyrir verkið Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús og á götum úti við Stjórnarráð og Alþingi Íslands, 3. október 2020 í samstarfi við Listahátíðina Cycle og Listahátíð í Reykjavík. 
 
Í umsögn dómnefndar kemur fram:
 
Tvíeykið Libia Castro (f. 1970) og Ólafur Ólafsson (f. 1973) sviðsettu í samvinnu við Töfrateymið stóran myndlistarviðburð Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland á árinu. Verkið er fjölradda tónlistar- og myndlistargjörningur við hundrað og fjórtán greinar nýrrar stjórnarskrár Íslands sem kosið var um í október 2012 og nær tveir þriðju hlutar samþykktu. Áræðið og úthugsað þátttökuverk sem varpar ljósi á mátt listarinnar og efnir til umræðu um sjálfan grunn samfélagssáttmálans.

.

Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland við Alþingi Íslands, 3. október 2020 í samstarfi við Listahátíðina Cycle og Listahátíð í Reykjavík. Ljósmynd: Owen Fiene.

Listin og töfrarnir geta leyst okkur úr álögum og hvatt okkur til þess að taka þátt. Tvíeykið vill heyra raddirnar, okkar allra sem lifum í lýðræðislegu fjölmenningarsamfélagi og skapa til þess listrænan vettvang. Verkið Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland er ákall um aðgerðir en jafnframt vandað tónlistar- og myndlistarverk sem snertir marga innan lista sem utan. Heiður er að veita tvíeykinu Libiu Castro og Ólafi Ólafssyni Íslensku myndlistarverðlaunin 2021.
 
Eftirfarandi myndlistarmenn voru tilnefndir sem Myndlistarmaður ársins 2021:
 
Haraldur Jónsson fyrir sýninguna Ljósavél í gallerí Berg Contemporary
Libia Castro og Ólafur Ólafsson fyrir Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland
Margrét H. Blöndal fyrir sýninguna Loftleikur í i8
Selma Hreggviðsdóttir og Sirra Sigrún Sigurðardóttir fyrir sýninguna Ljósvaki í gallerí Berg Contemporary

.

Una Björg MagnúsdóttirLjósmynd: Owen Fiene.

Una Björg Magnúsdóttir hlaut Hvatingarverðlaunársins fyrir sýninguna Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund, D40, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 16. jan. – 15. mars 2020.

Una Björg Magnúsdóttir (f. 1990) starfar í Reykjavík. Hún lauk B.A.-gráðu í myndlist við Listaháskóla Íslands 2014 og stundaði síðar M.A. nám í myndlist við École cantonale d’art de Lausanne í Sviss, þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Una Björg hefur verið virk á sýningarvettvangi hérlendis frá því að hún lauk námi, hlotið styrki, listamannalaun og átt frumkvæði að áhugaverðum samsýningum og uppákomum á myndlistarsviðinu.

Una Björg Magnúsdóttir hlaut Hvatingarverðlaun ársins fyrir sýninguna Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund, D40, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 16. jan. – 15. mars 2020.

Í umsögn dómnefndar kemur fram:

 „Titill sýningarinnar Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund er fengin að láni frá sjónhverfingarmanninum David Copperfield, er lét fólk hverfa sporlaust á sviði í Las Vegas. Hið ómögulega gert mögulegt í einni sjónhendingu. Una Björg stígur fram á sviðið á áhrifaríkan hátt með sýningu sinni og heiður er að veita henni Hvatningarverðlaunin 2021.“

Eftirfarandi myndlistarmenn voru tilnefndir til Hvatningarverðlauna ársins 2021:

Andreas Brunner fyrir Ekki brotlent enn, í D-sal  í Listasafni Reykjavíkur.
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir fyrir Milli hluta í Listasal Mosfellsbæjar.
Una Björg Magnúsdóttir fyrir Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund í D-sal, Listasafni Reykjavíkur.

.

Þá fékk Listasafns Reykjavíkur viðurkenningu fyrir útgáfu sem fylgir yfirlitssýningum á Kjarvalsstöðum á verkum myndlistarmanna á miðjum ferli.

Í umsögn dómnefndar kemur fram:

Þegar hafa verið haldnar fjórar yfirlitssýningar í þessari sýningaröð og hefur hverri sýningu fylgt bók sem jafnframt er sýningarskár. Metnaður er lagður í útgáfuna, sem er bæði á íslensku og ensku. Í hverri bók er að finna myndir af verkum listamannsins ásamt vönduðum greinum fræðafólks og listamannsins sjálfs – sem dýpkar skilning á höfundaverki listamannsins.

.

Í dómnefnd Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020-21 sátu:

Helgi Þorgils Friðjónsson, formaður dómnefndar (Myndlistarráð)
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (Listfræðafélag Íslands)
Helga Óskarsdóttir (Samband íslenskra myndlistarmanna)
Valur Brynjar Antonsson (fulltrúi safnstjóra íslenskra myndlistarsafna)
Þorbjörg Jónsdóttir (Listaháskóli Íslands)

Nánari upplýsingar 
Klara Þórhallsdóttir, verkefnastjóri myndlistarráðs
s: 776 7751
klara@icelandicartcenter.is

Auður Jörundsdóttir, forstöðumaður KÍM
s: 562 7262
audur@icelandicartcenter.is

Related Posts